Opnun Silfurnesvallar 2024

Eftir að yngsti skráði félagsmaður golfklúbbsins Kristíanna Ylfa og okkar bestu vallarmenn höfðu farið vandlega yfir málin var tekin sú ákvörðun að opna inn á flatirnar nú um helgina. Sjálfboðaliðarnir okkar eru búnir að vera að vinna við völlinn síðustu tvær vikurnar. Mikil vinna hefur farið í flatirnar en blessuð gæsinn hefur farið hamförum á þeim í haust og nú aftur undanfarna daga. Búið er að setja upp svokallaða dreka til að reyna að sporna við ágangi hennar.

Við biðjum ykkur um að ganga vel um völlinn og sýna varkárni því enn er frost í jörðu og nýgræðingurinn viðkvæmur.

Next
Next

Kynning fyrir nemendur Fas