Meistaramót GHH
Það er LOKSINS komið að því að við erum búin að opna fyrir skráningu á meistaramótið! Við ætlum að reyna að hafa skemmtilega viðburði samhliða mótinu og viljum fá ALLA til að taka þátt!
Eins og nafnið felur í sér er mótið aðeins fyrir meistara, en það góða er að það leynist meistari í okkur öllum og þess vegna er mikilvægt að allir klúbbmeðlimir viti, að þetta mót er fyrir alla!!!
Í ár verður keppt bæði í punktakeppni og höggleik í neðstu forgjafarflokkum karla og kvenna, öldungaflokkum og unglingaflokkum! Þetta þýðir að ALLIR/ÖLL/ALLAR geta tekið þátt í keppni við hæfi Þetta mót er eitt það skemmtilegasta sem hægt er að taka þátt í svo við hvetjum alla til að stökkva í golfboxið og skrá sig!
Mótanefnd hefur klambrað saman keppnisskilmálum sem eru hér meðfylgjandi og mikilvægt að allir kynni sér þá!
Þrátt fyrir mikinn og góðan vilja þá getum við ekki komið til móts við alla varðandi tímasetningar - sumir vinna á kvöldin, aðrir á daginn og svo eru þeir sem vinna ekki neitt, en við komum til móts við þá síðastnefndu og höfum hentuga tímasetningu fyrir þá alla dagana Við prófum því að skipta þessu aðeins upp núna og byrja á mismunandi tímum svo vonandi þarf fólk ekki að taka sér frí frá vinnu alla dagana og sleppur með einn dag.
Fyrstu rástímar verða eftirfarandi og fyrir aftan kemur fram hvaða flokkar raðast á þessa rástíma (með fyrirvara um breytingar):
Miðvikudagur 11. júní kl. 15:00: Meistaraflokkur karla, unglingaflokkar
Fimmtudagur 12. júní kl. 9:00: Heldri kvenna flokkur, meistaraflokkur kvenna, heldri manna flokkur, 1. flokkur karla, meistaraflokkur karla.
Fimmtudagur 12. júní kl. 15:30 Unglingaflokkar.
Föstudagur 13. júní kl. 13:00: Heldri manna flokkur, 2. flokkur karla, 1. flokkur karla, meistaraflokkur karla, öldungaflokkur kvenna, 1. flokkur kvenna, meistaraflokkur kvenna.
Laugardagur 14. júní kl. 9:00: Heldri manna flokkur, heldri kvenna flokkur, 2. flokkur karla, 1. flokkur karla, 1. flokkur kvenna, meistaraflokkur kvenna, meistaraflokkur karla.
Með kærum kveðjum og von um frábæra þátttöku
Mótanefnd GHH