Golfhermir í golfskálanum

Um síðustu helgi tók golfklúbburinn í notkun golfhermi. Hermirinn er að gerðinni TrackMan og var valinn vegna þess hve notendavænn hann er auk þess sem möguleiki til allskornar golfleikja og mótahalds er í honum. Hermirinn er staðsettur í innri sal skálans og er gengið inn að aftanverðu. Félagar í klúbbnum hafa tekið þessari viðbót við starfið vel og fagna því að geta nú æft allan ársins hring. Fyrstu dagana fara bókanir fram á facebook síðu klúbbsins, Golfklúbbur Hornafjarðar, en á næstu dögum verður hægt að bóka beint hér á heimasíðu klúbbsins.

Previous
Previous

Fyrsta mótinu sem haldið er í golfherminum lokið

Next
Next

Aðalfundur Golfklúbbs Hornafjarðar 2024